SagaPro
Notað við tíðum þvaglátum

Setja í körfu ISK 2.190
40 töflur / 40 dagar

SagaPro er unnið úr laufum íslenskrar ætihvannar og er ein mest selda náttúruvara á Íslandi.

SagaPro er mikið notað af karlmönnum sem þjást af tíðum næturþvaglátum vegna góðkynja stækkunar í blöðruhálskirtli.  Konum og körlum með ofvirka blöðru hefur einnig þótt SagaPro hjálpa sér.  Klínísk rannsókn á SagaPro stendur yfir og vonir standa til að hún endurspegli þá góðu reynslu sem viðskiptavinir okkar hafa haft af SagaPro.

Rannsóknir á lífvirkum efnum í hvannarlaufi 

Ætihvannarlauf innihalda svokallaða flavónóíða. Rannsóknir benda til þess að slík efni geti haft slakandi áhrif á sléttar vöðvafrumur, eins og þær sem fyrirfinnast í þvagrás og blöðru. Virkni flavónóíða er talin hindra samdrátt í blöðru og þvagrás, en slíkur samdráttur getur átt þátt í aukinni tíðni þvagláta.

Tíð þvaglát

Tíð þvaglát eru algeng og geta átt sér margar ólíkar orsakir:

Stækkun í blöðruhálskirtli er oftast góðkynja, en getur einnig verið krabbamein. Mikilvægt er að leita til læknis ef þvaglát eru tíð, þar sem orsakir geta verið ólíkar. Á það sérstaklega við um karlmenn.

SagaPro er fáanlegt í heilsuvöruverslunum, apótekum, stórmörkuðum og Fríhöfninni. Einnig fáanlegt í vefverslun SagaMedica.

Algengar spurningar um SagaPro

Heimildir:
Interstitial Cystitis and Bladder Research:Progress and Future Directions. Yoshimura N, Chancellor MB. Rev. Urol. 2001; 3:  146-151.
Response of the isolated guinea pig bladder to exogenous and endogenous leukotrienes. Bjorling DE, Saban MR, Bruskewitz RC, Saban R. J. Urol. 1994; 152: 1281-1286.