Fréttir og fróðleikur
Sýning í Anaheim
18 Mar 2011
SagaMedica var nýlega á risastórri náttúruvörusýningu í Anaheim í Kaliforníu. Dreifingaraðili SagaMedica, Ecotrend, var þar með bás og Þráinn framkvæmdastjóri og Elín, eiginkona hans, voru þar og veiddu gesti inn í básinn með sýnishornum af SagaPro og Voxis. Áður en langt um leið voru önnur fyrirtæki farin að nota sömu aðferðafræði. Það er mikilvægt að vera vel sýnilegur á svona sýningum og eins og sést á myndinni er Þráinn í mjög svo áberandi bol með Íslandsþema.





