Fréttir og fróðleikur
Matís heimsækir SagaMedica
29 Nov 2010
Matís kom í heimsókn til okkar í framleiðsluhúsnæðið á Akranesi. Þetta var mjög ánægjulegur fundur.
Þráinn ræddi um fyrirtækið og framtíðarsýnina. Hann hélt líka góðri stemmningu með gamansögum eins og honum einum er lagið. Sigmundur ræddi um rannsóknir SagaMedica (sem hann hóf árið 1992). Perla sagði frá markaðssetningu fyrirtækisins og klínísku rannsókninni sem verið er að framkvæma á SagaPro (sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og gríðarstórt skref fyrir náttúruvöruiðnaðinn). Að lokum sagði Steinþór frá tækjakostinum.
Svo fengu allir Voxis hálsbrjóstsykur í kveðjugjöf.
Við vonum að þessi heimsókn sé aðeins upphafið að góðum samskiptum Matís og SagaMedica.




