Fréttir og fróðleikur

SagaMedica opnar vefverslun á Íslandi

11 Dec 2009

Íslensk vefverslun SagaMedica

SagaMedica hefur nú opnað vefverslun fyrir íslenskan markað. Fyrr á árinu hófum við sölu í gegnum vefinn til útlanda, en nú viljum við einnig gefa Íslendingum færi á að nálgast vörurnar í gegnum netið. Margir búa langt frá sölustöðum og því er þetta mjög hentug leið fyrir marga landsmenn til að nálgast vörur okkar. Afurðir SagaMedica eiga erindi við fólk á ýmsum aldri og markvisst starf á netinu hjálpar okkur að ná til yngri markhópa.

Við reynum eftir fremsta megni að auðvelda kaupin og afhendinguna. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á vefnum til að kaupa í gegnum vefsöluna og það hraðar á pöntunarferlinu, ásamt því að lækka þröskuldinn hjá þeim sem hafa ekki áður keypt hluti á netinu.

Margar varanna, t.d. SagaPro,  passa inn um bréfalúgu. Í mörgum tilvikum er því ekki nauðsynlegt að fara á pósthús til að ná í sendingar, sé umfangið ekki þeim mun meira. Þar sem áhersla er lögð á að þægilegt sé að senda úr versluninni eru vökvarnir okkar ekki til sölu á vefnum. Hins vegar má nálgast þá hjá fjölmörgum smásölum okkar.

Vörurnar Angelica og SagaMemo eru enn sem komið ekki fáanlegar í netsölunni. Verið er að vinna að pakkningum sem henta vel í póstsendingum, en umræddar vörur munu verða fáanlegar í vefsölunni á fyrri hluta ársins 2010.