Fréttir og fróðleikur

Dr. Steinþór Sigurðsson ver doktorsritgerð

02 Dec 2009

Doktorsgráða í lífefnafræði

Dr. Steinþór Sigurðsson varði doktorsverkefni sitt, Chemical composition and biological activity of some Icelandic medicinal herbs, við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands mánudaginn 23. nóvember. Doktorsnafnbótin er afrakstur mjög umfangsmikilla rannsókna sem Steinþór hefur unnið að síðan 1995 undir leiðsögn Dr. Sigmundar Guðbjarnasonar, prófessors í lífefnafræði, sem hóf rannsóknirnar þremur árum áður.

Rannsóknirnar hafa leitt í ljós að íslenskar lækningajurtir innihalda mörg efni sem sýna lífvirkni. Með því er átt við að umrædd efni sýni virkni sem getur nýst í heilsufarslegu tilliti og til forvarna gegn ýmsum sjúkdómum. Þessar niðurstöður eru sérstaklega áhugaverðar í sögulegu samhengi, því þær varpa ljósi á notkun íslenskra lækningajurta í gegnum aldirnar og benda til þess að fyrri kynslóðir hafi oft haft á réttu að standa varðandi lækningamátt þeirra.

Um 40 jurtir voru rannsakaðar, en fljótlega var lögð áhersla á ætihvönn, (Angelica archangelica á latínu). Hvönnin hefur verið þekkt lækningajurt frá því fyrir landnám Íslands, en talið er að íslensk hvönn innihaldi meira af lífvirkum efnum en sama jurt sem vex í suðrænni löndum.
Fræðigreinar tengdar rannsóknarstarfinu hafa verið birtar í virtum, ritrýndum vísindatímaritum.

SagaMedica-Heilsujurtir ehf. er íslenskt líftæknifyrirtæki, stofnað árið 2000 utan um hagnýtingu þessara merku rannsókna. Vörur SagaMedica eru þróaðar með hliðsjón af fyrrnefndu vísindastarfi og innihalda efni sem eru meðal annars notuð við tíðum næturþvaglátum, til að viðhalda heilbrigðu minni, til að fyrirbyggja kvef og draga úr kvíða. Fleiri vörur eru væntanlegar og fyrirtækið leggur nú allt kapp á aukinn útflutning inn á stóra markaði erlendis og markaðssetningu á vefnum.