Fréttir og fróðleikur

Ný íslensk vefsíða SagaMedica opnuð

30 Sep 2009

SagaMedica hefur opnað nýja íslenska vefsíðu

Við erum afskaplega ánægð með nýju vefsíðuna. Hún er kynningartæki okkar á Íslandi og opnar nýja möguleika í markaðssetningu sem síðar verða mikið nýttir. Fyrr í sumar opnuðum við enska vefsíðu, en hún er orðin miðpunktur í erlendu markaðsstarfi SagaMedica og hefur skilað verulega góðum árangri.

Við viljum þakka Dacoda og Nordic eMarketing fyrir frábært samstarf við þróun beggja vefja.

Dacoda byggði vefsíðuna og vefverslunarkerfið af einstakri fagmennsku, en Nordic eMarketing veitir mjög sérhæfða ráðgjöf varðandi svokallaða leitarvélabestun.

Við ráðleggjum öllum þeim sem stunda erlenda markaðssetningu á netinu að tala við þessa aðila.

Kristinn Leifsson
Vefmarkaðsstjóri SagaMedica