Íslenskar lækningajurtir rannsakaðar
Rannsóknarstarf SagaMedica er hornsteinninn að fyrirtækinu. Sigmundur Guðbjarnason hóf rannsóknir á íslenskum lækningajurtum árið 1992. Þær rannsóknir leiddu til stofnunar SagaMedica árið 2000, eftir að sýnt hafði verið fram á ýmsa gagnlega eiginleika jurtanna.
Nú hefur SagaMedica rannsakað um helming þeirra áttatíu lækningajurta sem finna má í íslenskri náttúru. Rannsóknarstarfið felst einkum í þrennu:
- Að kanna sögulegar heimildir um notkun jurta við sjúkdómum
- Að kanna efnasamsetningu jurtanna
- Að reyna að útskýra efnafræðilega virkni jurtanna með tilliti til umræddra sjúkdóma. Það er gert með okkar eigin rannsóknum eða með hliðsjón af öðrum rannsóknum sem þegar hafa verið framkvæmdar.
Samstarf við íslenskar rannsóknarstofnanir
Eftirtaldar rannsóknarstofnanir hafa komið að rannsóknarstarfinu:
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands
Sigmundur Guðbjarnason, prófessor
Steinþór Sigurðsson, lífefnafræðingur
Snævar Sigurðsson, lífefnafræðinemi
Haraldur Sigurðsson, lyfjafræðinemi
Sigríður Jónsdóttir, efnafræðingur
Rannsóknarstofa HÍ í veirufræði
Margrét Guðnadóttir, prófessor í veirufræðum
Læknadeild Háskóla Íslands
Helga Ögmundsdóttir, prófessor
Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði
Jónas Hallgrímsson, prófessor
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
Björn Þorsteinsson, líffræðingur
Ásdís Helga Bjarnadóttir, ræktunarfræðingur
Sýkladeild Landspítala Háskólasjúkrahúss
Helga Erlendsdóttir
Garðyrkjustöðin Engi
Ingólfur Guðnason, garðyrkjubóndi





