Jurtir gegn veirum
Margar lækningajurtir og grænmetistegundir innihalda lífvirk efni sem vinna gegn veirum. Þetta eru náttúrulegar varnir jurtanna sem þær nota sjálfar til að verja sig.
Náttúran nýtt til forvarna gegn veirum
Farsóttir líkt og flensa gerðu mikinn usla á árum áður og varnir eru fremur litlar enn í dag. Erfitt er að þróa varnarlyf sem eru fyrirbyggjandi fyrr en í ljós hefur komið hvernig flensuveiran stökkbreytist og smitast milli fólks. Það mun taka tíma að þróa og framleiða hentug lyf og því munu ekki allir hafa aðgang að þessum lyfjum.
Þegar slík hætta virðist fyrirsjáanleg er vert að huga að því hvernig hægt er að efla varnir líkamans á annan hátt, eins og með því að leita að náttúrulegum veiruvörnum.
Plöntur hafa þróað varnir gegn veirum
Plöntur hafa á milljónum ára þróað eigin varnarvopn gegn veirum. Þessar veiruvarnir eru margs konar lífvirk náttúruefni sem finnast bæði í grænmeti og ávöxtum.
Dæmi um grænmeti sem inniheldur veiruvirk efni; sellerí, tómatar, gulrætur, laukur, rósmarín, greip og appelsínur.
Veiruvirk efni finnast einnig í lækningajurtum, en þær hafa verið nýttar öldum saman til að styrkja varnir líkamans.
Dæmi:
- ætihvönn (Angelica archangelica)
- blóðberg (Thymus praecox ssp. Arcticus)
- vallhumall (Achillea millefolium)
Fúranókúmarín eru mikilvæg efnavopn jurta og sýnt hefur verið fram á áhugaverða lífvirkni þeirra í mönnum. Sýnt hefur verið að ef sellerí er sýkt með veiru, þá örvast framleiðsla á fúranókúmarínum mjög mikið í jurtinni veirufjölgun er bæld niður. Neysla jurta eða náttúruvara sem innihalda veiruvirk efni getur hugsanlega dregið úr áhrifum veirusýkinga eða fækkað tíðni þeirra.
Í ætihvönn eru mörg veiruvirk efni, eins og imperatorin (sem er fúranókúmarín). Þetta efni hindrar fjölgun á HIV veirunni sem veldur eyðni. Erlendis er verið að rannsaka hvernig imperatorin verkar á HIV veiruna og hvort og hvernig nota megi þetta efni við meðferð á eyðni. Imperatorin finnst í vörunni Angelicu sem framleidd er úr fræjum ætihvannar.
Flavonóíðar er stór flokkur lífvirkra efna, en sumir þeirra eru virkir gegn veirum. Í ætihvönn, vallhumli og blóðbergi eru efni sem hefta fjölgun á kvefveirum og fleiri veirum. Þessi virku efni eru flavonóíðar. Þeir finnast í laufum ætihvannar, en Voxis hálstöflur eru unnar úr þeim.
Umræddar jurtir innihalda mikinn fjölda annarra efna sem hafa virkni gegn veirum. Þær eru því áhugavert viðfangsefni til frekari rannsókna.
Dr. Sigmundur Guðbjarnason, professor emeritus.
Heimildir:
Imperatorin Inhibits HIV-1 Replication through an Sp1-dependent Pathway. Rochio Sancho et al. J. Biol. Chem. 279; 37349-37359, 2004
Anti-human immunodeficiency virus activity of 3,4,5-tricaffeoylquini cacid in cultured cells of lettuce leaves. Tamura H, Akioka T, Ueno K, Chuivo ; Okazaki K, King PJ, Robinson WE Jr.Mol Nutr Food Res. 50; 396-400, 2006.
Isolation and characterization of an antiviral flavonoid from Waldsteinia fragarioides. Abou-Karam M, Shier WT. J. Nat. Prod. 55; 1525-1527, 1992.
Antiviral activity of Plantago major extracts and related compounds in vitro. Chiang LC, Chiang W, Chang MY, Ng LT, Lin CC. Antiviral Res. 55; 53-62: 2000.
Antiviral activity and mode of action of caffeoylquinic acids from Schefflera heptaphylla (L) Frodin. Li Y, But PP, Ooi VE. Antiviral Res. 68: 1-9, 2005.





