Umsagnir viðskiptavina

SagaPro

Stóla á SagaPro á daginn

Kynni mín af SagaPro voru í gegnum Kristin Leifsson hjá SagaMedica [...]. Hann heyrði að ég væri að vandræðast með þetta klassíska vandamál hjá okkur, sem erum með ofvirka eða lamaða blöðru, að maður væri sífellt að skima eftir næsta salerni. Í mínu tilfelli hefur bara það að fara til Reykjavíkur verið kvíðvænlegt, þótt ekki sé langt að fara. Það var heldur ekki beint þannig að ég þyrfti endilega að fara á salerni, það var bara þessi tilfinning.

Kristinn spurði hvort ég vildi prófa SagaPro­ töflurnar og ég játti því, svo framarlega sem þær ynnu ekki gegn þeim lyfjum sem ég þarf að vera á vegna lömunarinnar. Svo reyndist ekki vera og ég fékk SagaPro strax næsta dag. Þetta var í maíbyrjun [2010], og fljótlega fann ég mun. Ég varð afslappaðri, og skil það ekki enn því ég hafði svo litla tilfinningu fyrir því hvort ég þyrfti að fara að pissa eða ekki. Vissi bara að ég þyrfti að fara reglulega til að tæma mig.

SagaPro olli því að mér fannst ég ekki þurfa að byrja á því að skima eftir salerni um leið og ég kom í hús. Og það að fara út úr bænum er ekki lengur eins mikið mál. Í byrjun október fékk ég svo að miklu leyti tilfinninguna í blöðruna aftur, en hún hefur verið lömuð í 1 ár og 8 mánuði. En það hefur ekki reynst gæfulegt að sleppa SagaPro, né lyfjunum sem ég hef þurft að nota, því þá kemur strax þessi herpingur og klósettferðirnar aukast. Lífsgæðin hafa því klárlega aukist þar sem salernisferðir eru ekki eins örar og hugurinn ekki eins upptekinn af þessu viðvarandi vandamáli. Nú er hægt að fara í lengri ökuferðir án þess að þurfa að velta því fyrir sér hvar næsta sjoppa sé opin, eða hvort þessi eða hin frænkan sé heima sem hægt væri að komast á klóið hjá. Ég finn ekki fyrir þessu vanda­máli á nóttunni, en það er líklega vegna þess að ég nota nánast alltaf þvaglegg fyrir nóttina til að tæma blöðruna. Ég sef því alveg í gegnum nóttina nema lömunin sé í miklum ham þá fer ég kannski á klósettið um sexleytið um morguninn. Því er ég að stóla á SagaPro á daginn, sem er kannski svolítið öfugt miðað við aðra, en hentar mér ákaflega vel.

Í mínu tilfelli held ég að hlutirnir hafi gerst frekar hratt og hvet ég þá sem ætla að prófa vöruna að gefa þessu tækifæri og taka hana í alla vega mánuð til að sjá hvort hún hafi áhrif.

Helga Arnardóttir (úr tímaritinu Meginstoð)

Skiljum ekki hvernig við fórum að áður en við fengum SagaPro

Ég kaupi SagaPro reglulega fyrir manninn minn sem nýtur mjög góðs af þessari frábæru vöru. SagaPro tryggir honum góðan nætursvefn án þess að hann þurfi að fara oft á salernið, en slíkt veldur streitu og svefnleysi sem hefur svo áhrif á hann í vinnunni. Það eru engar aukaverkanir eða vandamál með SagaPro. Við gætum ekki hugsað okkur að vera án vörunnar og skiljum ekki hvernig við fórum að áður. Okkur þykir SagaMedica mjög fagmannlegt fyrirtæki og þau senda vöruna hratt og án tafar. Það er mjög þægilegt að versla við þau. Ég færi starfsmönnum SagaMedica mínar bestu þakkir.

Rowena B, Bretlandi (lauslega þýtt úr ensku)

Urell

Mæli með Urell við blöðrubólgu

Mæli hiklaust með Urell við blöðrubólgu. Jafnvel þó hún sé byrjuð og komin vel af stað þá hefur Urell bjargað mér það vel að ég þurfti ekki að fá uppáskrifuð lyf.

Anna Arnardóttir

Fann mikinn mun strax eftir nokkra daga

Ástæðan fyrir því að ég prófaði Urell er sú að ég hef mjög lengi verið með vandamál tengd þvagfærakerfi. Við ræktun hefur þó ekki komið fram nein sýking og því hefur verið erfitt að eiga við þetta með lyfjum.  Ég hef nú tekið inn Urell í nokkurn tíma og fann mikinn mun strax eftir nokkra daga og er því mjög ánægð með árangurinn. Mér líður mun betur og finn að ég losna við bólgur og þrota sem hefur verið að plaga mig.  Það er mjög þægilegt að skella einfaldlega í sig einu hylki á morgnana og gera þannig daginn mun betri. Svo er einfalt að panta Urell á netinu og þægilegt að fá það sent heim inn um lúgu.

Ásta

Virkar betur

Sonur minn sem nú er táningur hefur glímt við mikla þvagfærasýkingu frá unga aldri. Henni fylgja miklir verkir, sviði og önnur slæm einkenni. Hann hefur því þurft að vera á sýklalyfjum meirihlutann af ævinni. Þau fara ekki vel í líkamann til lengdar og því höfum við einnig leitað annarra leiða fyrir hann. Þegar við sáum Urell auglýst í blaðinu var því ekki spurning um að prófa. Nú hefur hann tekið tvo pakka af Urell og finnur mun til hins betra. Þegar ég fór að kynna mér vöruna fann ég miklar upplýsingar um hana, meðal annars að Urell innihaldi 36 milligrömm af PAC í hverju hylki, sem er miklu meira en þær trönuberjavörur sem við höfðum prófað áður og líklega ástæðan fyrir því að það virkar betur.

Hannes

Ætla að halda áfram að taka Urell

Urell virkar mjög vel á mig. Ég var með nýrnastein og varan virðist alveg hafa náð að losa mig við bakteríurnar sem fylgja því oft. Ég ætla að halda áfram að taka Urell til að vera viss um að bakteríurnar taki sig ekki upp aftur.

Dolores Mary Foley