Starfsfólk SagaMedica
SagaMedica hefur á að skipa starfsfólki með fjölbreyttan bakgrunn sem nýtist fyrirtækinu bæði í rannsóknarstarfi sem og rekstri og markaðssetningu.

Dr. Sigmundur Guðbjarnason
Sigmundur er rannsóknastjóri SagaMedica.
Hann hefur rannsakað íslenskar lækningajurtir í áratugi og SagaMedica var stofnað í kjölfarið á því rannsóknastarfi.
Sigmundur er heiðursprófessor í lífefnafræði og fyrrum rektor Háskóla Íslands.
|

Þráinn Þorvaldsson
Þráinn er framkvæmdastjóri SagaMedica og er með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Lancasterháskóla í Bretlandi.
Hann hefur mikla reynslu af markaðsstarfi á Íslandi, í Evrópu og Norður-Ameríku ásamt því að hafa reynslu úr matvælaframleiðslu.
|

Elín Óskarsdóttir
Elín er aðstoðarmaður framkvæmdastjóra og er með Cand. Oecon. gráðu frá Háskóla Íslands.
|

Magnús Ólafsson
Magnús sér um bókhald SagaMedica og er með Cand. Oecon. gráðu frá Háskóla Íslands.
|

Dr. Steinþór Sigurðsson
Steinþór er verkefnastjóri í rannsóknadeild SagaMedica. Síðan 1994 hefur hann unnið við þær rannsóknir sem SagaMedica byggir á. Steinþór er með doktorsgráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands.
|

Perla Björk Egilsdóttir
Perla er markaðsstjóri SagaMedica og hefur umsjón með útflutningi. Hún er með B.S. gráðu í lífefnafræði frá Háskóla Íslands og áralanga reynslu úr lyfjageiranum.
|

Kristinn Leifsson
Kristinn er verkefnastjóri í markaðsdeild SagaMedica. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.
|

Karl Óskar Viðarsson
Karl er framleiðslustjóri SagaMedica. Hann er með meistaragráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
|

Tanja Sif Árnadóttir
Tanja Sif er verkefnastjóri í markaðsdeild SagaMedica. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum á Akureyri
|