SagaMedica býður viðskiptavinum að hringja í pöntunarsíma og fá vörur sendar heim.

Pöntunarsíminn er oftast opinn á milli 10 og 13 virka daga.  Ef ekki næst í starfsmann SagaMedica er mögulegt að skilja eftir nafn og símanúmer og við hringjum í þig næsta virka dag.

Aðeins er hægt að greiða með kreditkorti. Fyrirkomulagið er það sama og ef viðkomandi verslar sjálfur á vefsíðunni okkar, með þeirri undantekningu að við framkvæmum pöntunina fyrir þig. Pantanirnar eru því framkvæmdar í gegnum netið, um örugga greiðslugátt Kortaþjónustunnar. SagaMedica geymir ekki greiðslukortaupplýsingar.

Hægt er að panta sömu vörur og eru til sölu í vefversluninni okkar. Skoðaðu endilega úrvalið í vefversluninni hér áður en þú hringir.

Því miður er ekki hægt að panta glerflöskur í pöntunarsímanum.

Við þurfum eftirfarandi upplýsingar til að framkvæma pöntunina:

  1. Fjölda hverrar vöru
  2. Nafn og heimilisfang (ásamt netfangi ef þú ert með slíkt)
  3. Kortanúmer
  4. Gildistíma kortsins
  5. Þriggja stafa öryggisnúmer, skáletrað, sem finna má á bakhlið kreditkortsins við hlið undirskriftarinnar.

Vörur eru yfirleitt póstlagðar á hverjum degi. Vörur eru aðeins sendar innanlands úr pöntunarsímanum. Ekkert aukagjald er tekið fyrir símapantanir og sendingarkostnaður er enginn.

Pöntunarsíminn er 414-3076.

Vinsamlegast athugið að þetta símanúmer er aðeins ætlað fyrir pantanir. Aðrar fyrirspurnir berist í síma 414-3070.