Hver framleiðir Urell?
Pharmatoka í Frakklandi framleiðir Urell.
Á heimasíðu Pharmatoka er að finna mikið af fróðleik á ensku um Urell, virknina, söguna, vinnslu trönuberjanna og fleira.
Hverjir þurfa helst að nota Urell?
Allir geta fengið þvagfærasýkingu en hún er algengari á meðal kvenna þar sem þvagrásaropið er nær endaþarmi. Blöðrubólga af völdum baktería er algengasta tegundin af þvagfærasýkingu og hrjáir aðallega konur.
E.Coli bakterían orsakar meira en 90% allra þvagfærasýkinga. Þvagfærasýkingu er aðeins hægt að lækna með sýklalyfjum sem drepa bakteríurnar. Hins vegar hafa E.Coli bakteríur sýnt aukið ónæmi gegn sýklalyfjum og því hafa margir læknar sýnt náttúrulegum leiðum áhuga.
Eftirtalið getur bent til þvagfærasýkingar:
- óþægindi við að pissa (dysuria)
- þrýstingur neðarlega í kvið
- hvít blóðkorn fleiri en 10^5/ml (pyuria)
- tíð eða skyndileg þörf til að pissa
- óeðlilegur litur á þvagi (þokukenndur)
Leitið læknis ef grunur leikur á sýkingu.
Helstu kostir Urell
- Náttúruleg leið til að viðhalda heilbrigði í þvagfærum
- Aðeins eitt hylki á dag
- Inniheldur viðurkennda skammtastærð af PAC
- Lágt verð fyrir nauðsynlegan dagsskammt af PAC
- Enginn sendingarkostnaður og pakkinn kemst yfirleitt inn um lúgu. Við sendum að jafnaði alla virka daga og varan berst mjög fljótt.
Urell inniheldur trönuberjaextrakt sem gagnast við þvagfærasýkingu. Hvert hylki inniheldur 36mg af svokölluðum proanthocyaníðínum (PAC) en frönsk heilbrigðisyfirvöld viðurkenna sérstaklega þann dagskammt í baráttunni við þvagfærasýkingu.
Hvernig virkar Urell?
Þegar E.Coli bakteríur berast inn í þvagblöðru festa þær sig við blöðruvegginn með þar til gerðum þráðum. PAC efnið í Urell hefur svokallaða andviðloðunareiginleika sem losar bakteríurnar burt svo þær skolast út með þvaginu.
Urell drepur því ekki bakteríur heldur hjálpar til við að fjarlægja þær úr þvagblöðru og þvagrás á náttúrulegan hátt.
Hvað þarf að taka mörg hylki af Urell á dag?
1
Hvað eru mörg hylki í einum pakka?
15
Hversu lengi þarf að taka Urell?
Ef óþægindi gera vart við sig er mælt með 15 daga skammti hið minnsta. Fyrstu tvo dagana getur verið gott að taka 1 hylki 2x á dag til að flýta árangri. Þá helst virknin yfir sólarhringinn. Hverfi óþægindin ekki fljótt er að sjálfsögðu nauðsynlegt að ræða við lækni.
Til að komast almennilega fyrir vandamálið er mælt með því að taka Urell í 30 daga.
Má taka Urell að staðaldri?
Já, ef engin heilsufarsvandamál mæla sérstaklega á móti því er í lagi að taka Urell að staðaldri í forvarnarskyni.
Mega þungaðar konur eða konur með barn á brjósti taka Urell?
Já.
Mega börn taka Urell?
Börn yfir 6 ára aldri sem eiga ekki í erfiðleikum með að kyngja hylkjunum mega taka Urell.
Tryggðu nægilegan PAC skammt á dag
Langflestar trönuberjavörur innihalda mun minna af PAC en talið er nauðsynlegt. Þetta gerir það að verkum að fólk þarf að taka mun fleiri hylki á dag en ella. Mikill meirihluti trönuberjavara inniheldur aðeins frá 2 til 6 mg PAC í dagskammti. Urell inniheldur 36mg af PAC, magnið sem klínískar rannsóknir hafa sýnt að þurfi til að vinna gegn þvagfærasýkingu.
Ekki sama hvernig PAC er mælt
Gangið úr skugga um að dagskammtur trönuberjavörunnar sem þið takið innihaldi 36mg af PAC skv. DMAC mælingu, eða 72mg af PAC skv. NP-HPLC mælingu. Þessar tvær mælingaraðferðir eru ólíkar.
(36mg PAC með DMAC mælingu = 72mg PAC með NP-HPLC mælingu).
Sú seinni er mikið notuð í Bandaríkjunum og því er skynsamlegt að taka mið af 72mg af PAC þegar bandarískar vörur eru annars vegar þar sem NP-HPLC mælingartæknin er gjarnan notuð þar.
Ekki sama hvaða trönuber
Athugið að aðeins hefur verið sýnt fram á andviðloðunarvirkni með trönuberjum af tegundinni Vaccinium macrocarpon. Til eru önnur trönuber og munur á milli tegunda getur verið mjög mikill lífefnafræðilega séð.
Ekki sama hvaða PAC
Athugið að það eru til tvær tegundir af PAC.
PAC-B finnst í mörgum ávöxtum. Hins vegar innihalda trönuber PAC-A. Það form sýnir andviðloðunarvirkni, en hitt ekki.
Nokkur góð ráð
- Drekka nóg af vökva til að tryggja nægilega útskolun
- Pissa a.m.k. 4-5 sinnum á dag og alltaf eftir samfarir
- Gæta góðs (en ekki yfirgengilegs) líkamlegs hreinlætis
Aftur á aðalsíðu Urell






