Spurt um SagaPro
Sjá aðalsíðu SagaPro
Hverjir nota SagaPro?
Notendur SagaPro eru iðulega fólk sem hefur þjáðst af tíðum þvaglátum. Yfirleitt er um að ræða karlmenn með góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli, en einnig hefur varan verið vinsæl hjá fólki af báðum kynjum með ofvirka blöðru.
Er komin reynsla á vöruna?
SagaPro hefur verið á markaðnum frá árinu 2005 og notið sívaxandi vinsælda. Varan var prófuð af nokkrum einstaklingum í tvö ár áður en ákveðið var að fara út í framleiðslu. Sú prófun benti til þess að varan gæti hjálpað fólki sem þjáist af tíðum þvaglátum. Hafa ber í huga að klínískar rannsóknir hafa ekki enn verið framkvæmdar á SagaPro. Þær eru hins vegar fyrirhugaðar og áralöng reynsla gefur góðar vonir um að slíkar rannsóknir verði okkur hagfelldar.
Hvaða rannsóknir liggja á bakvið efnin í SagaPro?
Umtalsverðar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á efnum sem finnast í ætihvönn, bæði hérlendis sem erlendis. Ætihvannarlauf innihalda flavónóíða sem taldir eru hafa slakandi áhrif á sléttar vöðvafrumur. Þróunarstarf okkar er mjög metnaðarfullt og framleiðsluferlið tryggir að magn lífvirkra efna í vörunum haldist óbreytt frá því magni sem er í hráefninu.
Hversu mikið á að taka af SagaPro og hve oft?
Ein tafla á dag á að nægja, en margir segjast ná betri árangri ef tvær töflur eru teknar. Fólk byrjar gjarnan á því að taka tvær töflur á dag í upphafi notkunar. Best hefur þótt að taka töflurnar fyrir svefn ef um næturþvaglát er að ræða.
Hvað tekur langan tíma að finna fyrir breytingu á tíðni þvagláta?
Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir sem finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma, en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki. Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir fyrir þeim geta verið margvíslegar. Þetta á sérstaklega við um karlmenn.
Getur SagaPro hjálpað konum?
Margar konur taka SagaPro og segjast njóta góðs af. Ofvirk blaðra er algeng orsök tíðra þvagláta og hrjáir bæði kyn. Við teljum að þar sé að finna skýringuna fyrir notkun kvenna á SagaPro.
Sykursýki og tíð þvaglát - Getur SagaPro hjálpað í þannig tilfellum?
Þeir sem nú þegar njóta meðhöndlunar læknis við sykursýki geta prófað SagaPro eins og aðrir.
Er virknin í SagaPro mæld?
Framleiðsluferlið tryggir að hver tafla innihaldi um 100 mg af lífvirkum efnum.
Eru einhverjar neikvæðar aukaverkanir af SagaPro?
Það eru engar, þekktar neikvæðar aukaverkanir af neyslu SagaPro. Þó er alltaf almennur möguleiki á því að fólk hafi einhvers konar plöntuofnæmi.




