Spurt um SagaMemo

Sjá aðalsíðu SagaMemo

Alsheimer, Alzheimer, minnistapÚr hverju er SagaMemo unnið?

SagaMemo er unnið úr fræjum íslenskrar ætihvannar og íslensku blágresi.

Við hverju er SagaMemo notað?

SagaMemo er notað af fólki sem vill viðhalda heilbrigðu minni.

Hvaða rannsóknir liggja á bakvið efnin í SagaMemo?

Sýnt hefur verið fram á samvirkni innihaldsefna SagaMemo. Rannsóknir á tilraunastofu benda til þess að innihaldsefnin geti hindrað niðurbrot taugaboðefnisins asetýlkólíns. Þær tilraunir fóru fram á tilraunastofu og hafa niðurstöðurnar verið birtar í ritrýndu tímariti. Umtalsverðar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á ætihvönn, bæði hérlendis sem erlendis. Þróunarstarf okkar er mjög metnaðarfullt og framleiðsluferlið tryggir að magn lífvirkra efna í vörunum haldist óbreytt frá því magni sem er í hráefninu.

Er óhætt að taka SagaMemo með lyfjum?

Fólki sem tekur lyf er ráðlagt að ráðfæra sig við lækni áður en það hefur neyslu fæðubótarefna. Almenn regla er að leyfa að minnsta kosti tveimur tímum að líða á milli inntöku lyfja og fæðubótarefna. Þetta er gert til að forðast það að fæðubótarefni hindri virkni lyfs eða auki hana. Þetta á við um öll fæðubótarefni.

Framkallar SagaMemo einhverjar aukaverkanir?

SagaMemo getur aukið ljósnæmi húðar og því ber að varast sólböð og ljósabekkjanotkun. Möguleiki á plöntuofnæmi er til staðar, en það á við um allar plöntuafurðir. Fólki sem tekur blóðþynnandi lyf og fólki sem þarf að fara í aðgerð er bent á að SagaMemo hefur blóðþynnandi áhrif. Slík áhrif ber að varast í þeim tilfellum (þó þau séu jafnan talin jákvæð í öðrum tilfellum). Fólki er ráðlagt að hafa samband við lækni ef vafi leikur á.