Spurt um Angelicu
Sjá aðalsíðu Angelicu
Úr hverju er Angelica unnin?
Angelica er unnin úr fræjum íslenskrar ætihvannar
Við hverju er Angelica notuð?
Notendur Angelicu hafa notað vöruna til varnar veirusýkingum og til að fyrirbyggja kvíða. Rannsóknir sýna að fræ íslensku hvannarinnar innihalda efni sem geta skipt máli í þessu sambandi.
Hvað þýðir nafnið?
Orðið „angelica“ merkir „hvönn“ á mörgum tungumálum.
Hversu margar töflur af Angelicu má taka og hversu oft?
Ráðlagður dagskammtur er ein tafla. Fyrir flesta ætti það að nægja en ef nauðsynlegt þykir er í lagi að taka tvær töflur.
Hvaða rannsóknir liggja á bakvið efnin í Angelicu?
Umtalsverðar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á ætihvönn, bæði hérlendis sem erlendis. Þróunarstarf okkar er mjög metnaðarfullt og framleiðsluferlið tryggir að magn lífvirkra efna í vörunum haldist óbreytt frá því magni sem er í hráefninu.
Af hverju má ekki nota Angelicu meðfram sólböðum eða ljósabekkjanotkun?
Lífvirk efni í hvannarfræjum geta aukið ljósnæmi húðar og gert hana viðkvæmari fyrir sól. Þetta fyrirbrigði er þekkt í mörgum jurtum og má nefna sellerí sem dæmi.
Er óhætt að taka Angelicu með lyfjum?
Fólki sem tekur lyf er ráðlagt að ráðfæra sig við lækni áður en það hefur neyslu fæðubótarefna. Almenn regla er að leyfa að minnsta kosti tveimur tímum að líða á milli inntöku lyfja og fæðubótarefna. Þetta er gert til að forðast það að fæðubótarefni hindri virkni lyfs eða auki hana. Þetta á við um öll fæðubótarefni.
Framkallar Angelica einhverjar aukaverkanir?
Angelica getur aukið ljósnæmi húðar og því ber að varast sólböð og ljósabekkjanotkun. Möguleiki á plöntuofnæmi er til staðar, en það á við um allar plöntuafurðir. Fólki sem tekur blóðþynnandi lyf og fólki sem þarf að fara í aðgerð er bent á að Angelica hefur blóðþynnandi áhrif. Slík áhrif ber að varast í þeim tilfellum (þó þau séu jafnan talin jákvæð í öðrum tilfellum). Fólki er ráðlagt að hafa samband við lækni ef vafi leikur á.




